Har du visor min vän, sjung dem nu!
För nu är tiden då visor ska sjungas
och den som ska sjunga är du!
I morgon är kanske för sent, min vän.
Så synd om de sånger som aldrig blir sjungna!
Så tala inte om visor med mig.
Lå-t visorna tala för dig.
Tuesday, January 22, 2008
Tuesday, June 13, 2006
Thursday, January 05, 2006
Jæja
Er eiginlega búin að pakka og það var nú meira helvítið. Ég get ekkert ákveðið hvað ég þarf að nota næsta hálfa árið. Fer til Reykjavíkur á eftir og svo fljúgum við í fyrramálið. Ég hlakka ekki til að kveðja fólk í kvöld en það verður bara að hafa það. Ég ætla svo persónulega að sjá til þess í kvöld að mitt kæra Fjelag panti miða til Danmerkur um páskana. Ég verð frek og leiðinleg þangað til þeir láta undan...
Um helgina verðum við í Kaupmannahöfn. Meðal annars er IKEA ferð á dagskrá á föstudaginn. Ö, morgun semsagt. Þurfum að kaupa sængur og drasl. Hef ekki hugmynd um hvar IKEA er en Elísabet sér um þetta. Eins og annað. Hún er mamman. Svo ætlum við auðvitað að kíkja á einhverjar útsölur og svona og vera ýkt hressir Íslendingar í Kaupmannahöfn. En eftir hádegi á sunnudag förum við til Hilleröd. í Grundtvigs Höjskole. Smá kvíði. En þetta verður í lagi. Ég kann alveg dönsku. Eða sko...jújú, ég kann alveg dönsku. Segjum það...
Nu går jeg.
Mojn! (æ, suðurjóska er víst ekkert töff) farvel þá.

Monday, January 02, 2006
Herra bæjarfógeti, þetta gengur ekki lengur.
Nýja árið byrjaði ekki vel. Ekki mikill hressleiki í gær. En gamlárskvöld var ótrúlega hresst, eiginlega alveg óvart bara. Það er skemmtilegast. Viðeigandi að enda þetta ár svona, í rugli með Fjelaginu. Rúnturinn eftir ballið, til kl 8 í gærmorgun, er með því sveittasta sem ég hef lent í. 6 manneskjur í 5 manna bíl. Ég man eftir blikkljósum, löggu, Darra stökkvandi út úr bílnum, Baileys í morgunsárið. Já, svo fengu menn þá frábæru hugmynd að setja keðjur undir bílinn um kl 7 í gærmorgun.
Takk Breki fyrir að vera þolinmóðasti bílstjórinn í bransanum… og Fjelagið og hressu stelpurnar fyrir félagsskapinn.
Mjög bráðlega fer ég til Danmerkur. Stutt sko. Mér finnst samt enn eins og ég sé bara að fara í helgarferð til Kaupmannahafnar. En við förum víst ekki aftur til Íslands á sunnudaginn heldur til Hilleröd. Ef við rötum það er að segja.
Í nótt lá ég andvaka því ég hugsaði svo mikið. Endaði með því að ég þurfti að hlusta á Kardemommubæinn. Þeir voru hressir, ræningjarnir.

Saturday, December 31, 2005
2005 var...
árið sem ég dimmiteraði, fór í 16 stúdentspróf og útskrifaðist
árið sem ég fór í 2 utanlandsferðir á 2 vikum. 6 flugtök á 2 vikum, allt of mikið fyrir lítið hjarta
árið sem ég gekk um götur Rómar, þangað fer ég aftur sem fyrst...
árið sem ég söng með hressu fólki í Kaupmannahöfn og kynntist Amager vandrerhjem
árið sem ég fékk að vera fjallkona í óskaplega fallegum búningi, flottustu föt sem ég fór í á árinu
árið sem ég varð tvítug
ár hinna mörgu tvítugsafmæla
árið sem ég fór í fyrsta skipti í almennilega útilegu. Og það var sko ein góð útilega.
árið sem ég hætti að vera menntaskólanemi og varð verkakona
árið sem ég eignaðist aðra fjölskyldu. Flutti inn á þau um svo að segja hverja helgi seinni hluta ársins
árið sem ég fór ekki í nein jólapróf. Ó svo ljúft
árið sem leið svo hratt.
Gleðilegt ár kæra fólk!

Thursday, December 29, 2005
Hmm

Já, ég er hér. Upptekin af ruglinu. Göngutúr í fjöru í svartamyrkri meðal annars. ,,Djöfull yrði ég hræddur ef við sæjum glært barn með þrjú augu" sagði einn félaganna í fjörunni upp úr þurru. Já, ég líka... haha.
En bráðum fer ég, allt of stutt í það eiginlega. Men sådan er livet.
Ég er ekki byrjuð að pakka en ég er búin að gera nokkra lista og svoleiðis. Ég veit af fenginni reynslu að það nær ekkert lengra fyrr en á síðustu stundu. Ojæja. Já, þessi mynd hérna tengist þessum texta hérna ekki neitt. Bara falleg flík.